1. Spjaldtölvan er eign Kópavogsbæjar. Starfsmaður hefur afnot af henni frá afhendingu og svo lengi sem starfsmaðurinn er í starfi við grunnskóla í Kópavogi. Spjaldtölvan er ekki afhent starfsmanni til eignar og er ekki litið á úthlutun tækisins sem skattskyld laun.
2. Kópavogsbær setur upp á spjaldtölvunni forstillingar sem leyfa nauðsynlega þjónustu, umsýslu og utanumhald.
3. Öllum starfsmönnum býðst að fá hulstur með spjaldtölvunni til hlífðar. Kjósi starfsmaður að notast við eigið hulstur er það heimilt. Ekki má nota spjaldtölvuna án hulsturs. Mælst er til þess að starfsmaður fari gætilega með spjaldtölvuna og verji hana gegn skemmdum og þjófnaði.
4. Undir engum kringumstæðum má nota spjaldtölvuna á ólöglegan hátt. Ekki má setja í hana stolnum forritum eða forritum sem breyta stýrikerfi hennar.
5. Ef spjaldtölvan bilar eða skemmist þarf að tilkynna það strax til skólans og verður starfsmanni þá útveguð sambærileg spjaldtölva. Það sama á við ef spjaldtölva týnist eða er stolið. Ef spjaldtölva finnst eftir að viðkomandi hefur fengið aðra spjaldtölvu þarf að skila henni til UT deildarstjóra.
6. Kópavogsbær annast þjónustu við spjaldtölvuna og skráningu aðgangs hennar að þráðlausri nettengingu í skólanum. Þráðlaust net sem auðkennt er með heitinu Kopavogur er ætlað fyrir spjaldtölvurnar og er starfsmönnum bent á að öðrum nettengingum fylgir ekki full virkni þráðlausa netsins.
7. Starfsmaður skal jafnan uppfæra stýrikerfi spjaldtölvunnar án tafar þegar nýjar uppfærslur berast. Starfsmanni er skylt að virkja staðsetningarbúnað spjaldtölvunnar og Find my iPad búnaðinn.
8. Nú færist starfsmaður á milli skóla innan Kópavogsbæjar. Heldur hann þá áfram sömu afnotum af spjaldtölvunni og annast Kópavogsbær tilfærslu á skráningu hennar innan tölvukerfis grunnskólanna.
9. Nú hættir starfsmaður störfum og skal hann þá skila spjaldtölvunni til síns skóla. Starfsmaður hefur ekki rétt til að halda spjaldtölvu í sumarleyfi eftir starfslok.

Uppfært í ágúst 2026
