Þegar nemendur í grunnskólum Kópavogs fá afhentar spjaldtölvur er lagt fyrir verkefni í öllum bekkjum þar sem nemendur gera sáttmála sem inniheldur fáar og einfaldar reglur um notkun spjaldtölvanna. Farið er yfir myndatökur og myndbirtingar, virðingu fyrir spjaldtölvum annarra, notkun spjaldtölvunnar sem leiktækis utan skóla, hver ræður notkuninni og hvað sé hæfilegur tími á dag með spjaldtölvuna.
Markmið með sáttmálanum
- Að nemendur íhugi hvað sé rétt og ábyrg notkun spjaldtölva og annarrar tækni
- Að nemendur sammælist um að spjaldtölvur séu notaðar á ábyrgan og skynsamlegan hátt í bekknum
- Að nemendur ræði þessi mál við foreldra sína
Undirbúningur kennarans
Mikilvægt er að kennari taki afstöðu til þeirra þátta sem eru til umræðu í þessu verkefni og kynni sér ennfremur hvaða viðhorf séu ríkjandi til þeirra í skólanum. Gott er að umræða um þau álitamál sem fjallað er um í verkefninu fari fram áður en verkefnið er lagt fyrir og er best að sú umræða fari fram þegar nemendur eru ekki að vinna með spjaldtölvurnar.
Í þessu verkefni hentar að nota mörg öpp og sem dæmi má nefna Padlet, Pages og Google Docs. Einnig er hægt að búa til einfalt skjal inn í Google Forms og láta hópana skila niðurstöðum þangað.
Þeir skólar sem eru með Uppeldi til ábyrgðar tengja sáttmálann við bekkjarsáttmála Uppbyggingarstefnunnar.
Verkefnið
Kennari skiptir bekknum í þriggja til fimm manna hópa og fær hver hópur umræðuefni til að fjalla um. Spurningarnar (eru hér fyrir neðan) eru settar inn í skjal (Docs eða Pages) og það síðan sent til hópanna með loftskeyti (Airdrop) eða nemendum gefinn upp kóði (Padlet). Ef Google Classroom er notað er spurningarnar gerðar aðgengilegar þar. Nemendur ræða málin í sínum hópi og komast að samkomulagi um reglur fyrir bekkinn. Einn úr hópnum tekur að sér ritarahlutverk og skilar niðurstöðum til kennara eða inn í Google Classroom. Í lokin stýrir kennari umræðum þar sem allar reglurnar eru kynntar fyrir bekknum, ræddar og samþykktar.
Eftir umræðurnar tekur kennari saman reglurnar, prentar þær út og hengir upp í kennslustofunni og í öðrum rýmum þar sem nemendur nota spjaldtölvur í námi. Einnig er upplagt að taka mynd af þeim og setja í Google Classroom eða gera aðgengilegar nemendum með öðrum rafrænum hætti.
Tilvalið er að senda reglurnar til foreldra og hvetja þá til að ræða þessi mál við börnin sín.
Hér eru spurningar sem hægt er að styðjast við sem kveikjur að umræðum
1. Myndatökur og myndbirtingar
Nemandi getur notað spjaldtölvuna til að taka myndir af kennara eða öðrum nemendum og birt hana á netinu.
- Hvað finnst okkur um það?
- Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
2. Spjaldtölvur og afþreying
Nemandi mun geta sótt sér öpp að eigin vali og sett upp í spjaldtölvunni, þar með talið ýmsa leiki.
- Hvað finnst okkur um það?
- Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
3. Virðing fyrir tækjum
Nemandi getur breytt stillingum í spjaldtölvu annars nemanda ef hún er ólæst.
Spjaldtölva getur skemmst ef ekki er farið vel með hana.
- Hvað finnst okkur um það?
- Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
4. Tími í tölvunni
Sumir nemendur geta átt erfitt með að stjórna því hve miklum tíma þeir eyða í tölvunni.
- Hvað finnst okkur um það?
- Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
5. Notkun í kennslustund
Kennari ræður hvenær spjaldtölvan er notuð í kennslustund og hvaða öpp eru notuð.
- Hvað finnst okkur um það?
- Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
6. Notkun heima
Foreldrar og forráðamenn ráða því hvernig spjaldtölvan er notuð í frítímanum heima.
- Hvað finnst okkur um það?
- Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
Uppfært í ágúst 2020