Allir nemendur í 1.- 4. bekk hafa annað hvort aðgang að spjaldtölvum í bekkjarsettum eða spjaldtölvu til einkanota. Nauðsynlegt er að hafa umgengnisreglur og mælt er með því að þær séu samdar í samtali og samstarfi við nemendur. Þessar leiðbeiningar eru hugsaðar sem grunnur að slíkum reglum og í þeim er farið er yfir myndatökur og myndbirtingar, virðingu fyrir spjaldtölvum annarra og hver ræður notkuninni í kennslustofunni. Þessar reglur, sem við kjósum að nefna bekkjarsáttmála, mega standa einar sér eða fléttast inn í bekkjar- eða skólareglur eða aðra sáttmála sem bekkurinn gerir.
Markmið með sáttmálanum:
• Að nemendur íhugi hvað sé rétt og ábyrg notkun spjaldtölva og annarrar tækni
• Að nemendur sammælist um að spjaldtölvur séu notaðar á ábyrgan og skynsamlegan hátt í bekknum
• Að nemendur ræði þessi mál við foreldra sína
Undirbúningur kennarans:
Kennari metur það með tilliti til aldurs og þroska nemenda hvort hann ræðir þessi mál við bekkinn í heild eða skiptir honum upp í hópa. Mikilvægt er að kennari taki afstöðu til þeirra þátta er lúta að spjaldtölvunotkun og kynni sér ennfremur hvaða viðhorf séu ríkjandi í skólanum áður en umræður hefjast. Einnig er bent á námsvefinn Námsefni í stafrænni borgaravitund þar sem ítarleg umfjöllun er um umgengni við tæknina.
Þeir skólar sem eru með Uppeldi til ábyrgðar tengja sáttmálann við bekkjarsáttmála Uppbyggingarstefnunnar.
Eftir umræðurnar tekur kennari saman reglurnar, prentar þær út og hengir upp í kennslustofunni og á öðrum stöðum þar sem nemendur nota spjaldtölvur í námi. Einnig er upplagt að taka mynd af þeim til að gera þær aðgengilegar nemendum og foreldrum með rafrænum hætti svo sem í foreldrabréfum og rafrænum skólastofum.
Foreldrar eru hvattir til að ræða þessi mál við börnin sín.
Hér eru spurningar sem hægt er að styðjast við sem kveikjur að umræðum:
1. Myndatökur og myndbirtingar
Nemandi getur notað spjaldtölvuna til að taka myndir af kennara eða öðrum nemendum og birt hana á netinu.
Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
2. Aðgangs- og lykilorð
Nemendur hafa sín eigin aðgangs- og lykilorð í bekkjarsettum sem þau verða að passa vel upp á.
Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
3. Virðing fyrir öðrum nemendum
Nemandi getur fiktað í verkefnum í spjaldtölvu annars nemanda ef hún er ólæst.
Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
4. Virðing fyrir spjaldtölvunni
Spjaldtölva getur skemmst ef ekki er farið vel með hana.
Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
5. Notkun í kennslustund
Kennari ætti að ráða hvenær spjaldtölvan er notuð í kennslustund og hvaða öpp eru notuð. Sama gildir hvað varðar hvaða vefsíður eru nýttar.
Hvaða reglu viljum við hafa um það í okkar bekk?
Uppfært í júní 2022