Pixel Art er app sem býr til díla (pixel) myndir. Bæði er hægt að teikna mynd eða breyta ljósmynd í dílamynd.
Hér eru svo orðskýringar á muninum á dílum og deplum.
Pixel Art er app sem býr til díla (pixel) myndir. Bæði er hægt að teikna mynd eða breyta ljósmynd í dílamynd.
Hér eru svo orðskýringar á muninum á dílum og deplum.

Hér eru leiðbeiningar hvernig hægt er að nota leikinn Minecraft í námi og kennslu.
Appið er hér en það kostar en einnig er til skólaútgáfa af appinu (Minecraft: Education Edition). Kennarar geta óskað eftir henni hjá UT deildarstjórum.
Á Facebook er hópurinn Minecraft: Education Edition á Íslandi
Léttur byrjendaleikur í kóðun með MakeCode.
Umfjöllun á Common sense media.
Lightbot er skemmtileg myndræn leið til að kenna einfalda forritun. Hér er ókeypis útgáfa af appinu í tengslum við Hour of Code. Hér er svo hægt að fá keyptu útgáfuna. Hér er svo stutt kennslumyndband.
Kostnaður: Frítt að ákveðnu marki.

Sýndartilraunir í efna-, eðlis- og líffræði sem virka vel í spjaldtölvum í gegnum vafra. Einnig er til app sem er hér en það kostar.
Þess má geta að þessar sýndartilraunir eru einnig í Nearpod.

Nú hafa Pixar og Khan Academy leitt saman hesta sína og útbúið kennslumyndbönd og verkefni í einfaldri forritun þar sem litli sæti lampinn kemur við sögu.
Fyrstu verkefnin henta öllum aldri en kennari gæti þurft að útskýra fyrir yngri nemendum hvað á að gera þar sem allt efnið er á ensku. Hægt að vinna verkefnin í PC tölvu en líka í iPad og þá bæði í vafra en líka í Khan-appinu sem finna má hér.

Duolingo er bæði vefsíða og app til að læra ýmis tungumál.
Hér eru leiðbeiningar um fyrstu skrefin.