Category Archives: Náttúrufræði
Pigeonetics

Pigeonetics er app sem gerir notendum kleift að fræðast um erfðafræði með því að rækta dúfur.
Pigeonetics er í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum.
Seek – Plöntu- og dýragreinir

Seek appið getur greint plöntur, dýr og sveppi. Hér er appið og hér er smá sýnishorn um virknina.
PlantNet plöntugreinir

Með PlantNet appinu er hægt að greina plöntur með því að taka myndir af þeim. Hér er appið og hér eru leiðbeiningar um fyrstu skrefin.
Photomath

Photomath er app sem getur lesið stærðfræðidæmi s.s. jöfnur og röð aðgerða og leyst þau skref fyrir skref. Appið kostar ekkert og má nálgast hér og hér er stutt myndband hvernig það virkar.
Photomath er í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum.
Human Anatomy Atlas – allt um líkamsbyggingu mannsins

Human Anatomy Atlas er app sem sýnir á myndrænan hátt líkamsbyggingu mannsins. Hér er stutt myndband um appið og hér er vefur framleiðanda.
Appið kostar en kennarar í Kópavogi geta fengið það með því að hafa samband við UT deildarstjóra í sínum skóla.
Quizlet – gagnvirkar æfingar

Með Quizlet geta nemendur þjálfað hugtakaskilning með gagnvirkum hætti. Kennari getur sett fyrir ákveðin verkefni en nemendur geta líka leitað að verkefnum í gagnagrunni Quizlet. Appið er hér og hér eru nánari upplýsingar um Quizlet og hér er kennslumyndband um fyrstu skrefin.
Sýndartilraunir í náttúrufræði

Sýndartilraunir í efna-, eðlis- og líffræði sem virka vel í spjaldtölvum í gegnum vafra. Einnig er til app sem er hér en það kostar.
Þess má geta að þessar sýndartilraunir eru einnig í Nearpod.

