Hér eru birtar spurningar sem berast á netfangið spjaldtolvur@kopavogur.is og svör við þeim.

Spurningar og svör – foreldrar:

Ég er foreldri í 5. bekk í einum af grunnskólum Kópavogs. Þar hefur verið tekin ákvörðun um að spjaldtölvurnar megi ekki fara heim með börnunum. Ég er alls ekki sammála þessari ákvörðun og finnst raunar að verið sé að mismuna börnunum eftir því í hvaða skóla þau eru.

Á eldra barn, í 9. bekk, sem fékk sína tölvu heim og það hefur ekki valdið neinum vandræðum. Ég hef bara sett reglur sem gilda um þetta tæki.

Hver er afstaða Kópavogsbæjar í þessu?

Afstaða Kópavogsbæjar er alveg skýr. Öllum nemendum skal gert kleift að nota spjaldtölvur í skólanum og nemendur í 5.-10. bekk mega taka þær heim.


Er hægt að takmarka aðgang nemenda að YouTube? Þar er margt gott og fróðlegt að finna en einnig margt sem er ekki hollt fyrir unga nemendur.

Meðan spjaldtölva er tengd þráðlausu neti í grunnskóla í Kópavogi er hún varin gegn óæskilegu efni sem ekki hæfir aldri nemandans. Foreldrar geta gert ráðstafanir heima fyrir, en þráðlausar nettengingar á heimilum er hægt að stilla þannig að börnin komist ekki í efni sem þau hafa ekki aldur til að sjá.

Einnig má finna kennslumyndbönd um ýmsar stillingar í spjaldtölvunni á leiðbeiningarsíðunni fyrir foreldra.


Hver getur beðið um að fá staðsetningu tölvunnar? Hver hefur leyfi til að rekja tölvuna, hefur sá sem er með það leyfi skrifað undir einhverskonar trúnaðarskilmála og hvort að við foreldrar fáum vitneskju um það hvort verið sé að rekja tölvuna?
Dæmi sem gæti komið væri ef ég tilkynnti að barnið væri veikt í nokkra daga.  Kennari grunar að barnið sé ekki veikt heldur í fríi í bústað.  Má kennari láta rekja tækið án beiðni frá foreldri?

Staðsetning tölvunnar verður eingöngu könnuð ef hún týnist eða er stolið. Í slíkum tilfellum á að tilkynna hvarf tækis tafarlaust til skóla og er litið svo á að í slíkri tilkynningu felist samþykki þess að starfsfólk aðstoði við leit að tækinu.
Vinnureglur varðandi stolin eða týnd tæki eru skýrar. Foreldrar skulu alltaf upplýstir. Sá sem tilkynnir glatað tæki hefur hingað til alltaf verið nemandinn sjálfur. Atvikið er þá skráð í mentor og foreldrum gert viðvart. Síðan er reynt að finna tækið og oftast er það gert í samstarfi við nemandann, sem skráir sig þá inn á www.icloud.com að viðstöddum starfsmanni og reynir að rekja tækið þannig.
Það er síðan af og frá að kennari geti óskað eftir rakningu tækis hjá nemanda í veikindaleyfi. Slík beiðni yrði aldrei samþykkt. Tæknilega væri hún líka þannig séð gagnslaus því staðsetning tækis sannar ekki staðsetningu barns.


Ef nemandi vill kaupa sér lyklaborð sem er líka hulstur. Er eitthvað því til fyrirstöðu að geyma orginal hulstrið og nota annað á meðan?

Nei, í rauninni ekki en okkur þætti æskilegra að nemandi sem kýs að nota annað hulstur en það sem er afhent með tækinu skili því síðarnefnda svo það geti nýst öðrum nemanda.


Eru gögnin í skýjum vistuð á öruggum og viðurkenndum stöðum?

Já. Skýjalausnir Google eru öruggar.

Um Google


Hvað er þetta Jamf? Ætlar Kópavogsbær að fylgjast með allri notkun barnsins míns?

Með Jamf verður skólum gert kleift að dreifa námsefni og öppum til nemenda og kennara miðlægt.  Með Jamf verður hægt að uppfæra stýrikerfi og hugbúnað á einfaldan og þægilegan máta.  Ef tæki týnist er hægt að rekja ferðir þess og ef tækinu er stolið er hægt að gera það ónothæft og eyða af því gögnum.

Notkun á hugbúnaðinum snýst því fyrst og fremst um umsýslu og þjónustu, að gera utanumhald einfaldara og skilvirkara.

Notkun á Jafm snýst ekki um einhverskonar rafræna vöktun eða annað sem snýr að persónulegum þáttum.  Um er að ræða umsýslu sem snýr að málefnalegum tilgangi, það er að þjónusta nemendur, kennara og foreldra.  Spjaldtölvurnar eru fyrst og fremst námstæki og til að þau þjóni tilgangi sínum þarf utanumhald.  Þar sem Kópavogsbær er eigandi tækjanna sinnir tölvudeild Kópavogs því miðlægt í stað þess að þjónusta eina og eina spjaldtölvu.

Sjá nánar á vef Persónuverndar.


Þurfa nemendur að útvega hulstrin sjálfir og lyklaborð á spjaldtölvur?

Nemendur munu fá hulstur með spjaldtölvunum þegar þær verða afhentar. Það er Kópavogsbær sem útvegar hulstrin. Lyklaborð eru i flestum tilvikum ekki nauðsynleg með spjaldtölvum.


Hvers er ábyrgðin hjá þeim sem fá spjaldtölvu til einkanota ef hún bilar eða skemmist í umsjón nemandans?  Er nemandinn skaðabótaskyldur gangvart skólanum ef spjaldtölvan skemmist?

Í raun gildir sama um spjaldtölvur og annan tæknibúnað í eigu skóla, sem nemendur nota. Bilanir eða skemmdir verða ekki til þess að mynda skaðabótaskyldu nema um sé að ræða vísvitandi skemmdarverk eða þjófnað af hálfu nemandans.

Nánari upplýsingar um tjón og skemmdir hér.


Eru menn 100% á því að spjaldtölvur og tilheyrandi þráðlaus net (WiFi) muni ekki valda börnunum skaða?    Svo virðist sem vísindamenn víða um veröld hafi vaxandi áhyggjur af slæmum áhrifum þessara tækja á líkamsstarfsemi, sérstaklega slæmum áhrifum á börn.

Uppsetning og frágangur á þráðlausu neti (WiFi) í grunnskólum Kópavogs er í einu og öllu eftir lögum og reglum sem um það gilda. Allur búnaður uppfyllir einnig öryggiskröfur Evrópusambandsins. Samkvæmt nýjustu rannsóknum bendir ekkert til þess að þráðlaust net sé hættulegt börnum eða unglingum. Rafsegulsviðsmælingar í skólum sem gerðar voru í Kópavogi á árinu 2014 leiddu í ljós að styrkur sviðanna var mjög lítill og langt innan við alþjóðleg viðmiðunarmörk. Sjá nánar hér og hér.

Ítarefni um geislun og þráðlaust net:

Farsímar, sendimöstur, rafsegulsvið frá Geislavörnum ríkisins

Lög um geislavarnir

Um skaðsemi þráðlauss nets, súrsaðs grænmetis og annarra hættulegra efna eftir Tryggva Thayer háskólakennara

FINAL OPINION ON EMF. Umsögn ESB um rafsegulbylgjur

Heimasíða EMF and Health



Spurningar og svör – kennarar

Snara.is virkar bara í PC tölvum í skólum en ekki í iPad. Hvað veldur?

Snara.is á að virka í iPad svo framarlega sem hann er tengdur við þráðlaust net Kópavogsbæjar.


Hvernig verður uppsetning á öppum?

Öppum til kennara og nemenda er dreift með Jamf umsýslukerfinu.

Hver og einn kennari getur nálgast hvaða öpp sem er í gegnum App Store. Hægt er að kaupa forrit til eigin nota með því að gefa upp greiðslukortanúmer í App Store og er hverjum og einum það heimilt sé þess óskað.


Hvernig setur maður efni úr iPad í skjávarpa?

Í þeim kennslustofum þar sem er skjávarpi hefur verið settur upp hugbúnaður sem kallast AirServer og gerir kleift að senda efni þráðlaust úr spjaldtölvu í skjávarpa. Einnig eiga skólarnir nokkur „skott“ en með þeim er hægt að tengja spjaldtölvuna við skjávarpa í gegnum skjásnúru.


Hvað með Office forritin Word, Excel og PowerPoint? Er hægt að nota þau á iPad?

Já, til eru sérstakar útgáfur af þessum forritum fyrir iPad og er hægt að setja þau inn á tæki nemenda og kennara í gegnum Jamf eins og lýst er hér að ofan.


Fá stundakennarar iPad eða bara kennarar í fullu starfi?

Almennt er miðað við að tækjum sé úthlutað til kennara í meira en 50% starfshlutfalli en með ákveðnu svigrúmi þó. Stundakennarar geta fengið spjaldtölvu ef skólastjóri telur þörf á því og óskar eftir úthlutun tækis. Hið sama á við um flesta starfsmenn skóla.


Hvað með find my iPad? Er það uppsett?

Ef spjaldtölva er týnd skal notandi bregðast við eins fljótt og hægt er. UT deildarstjóri skóla getur leitað að spjaldtölvu með umsjónarkerfinu.

Find my iPad er uppsett á tækjum kennara og er sjálfsagt að nota það ef kennari er ekki viss um hvar tæki er niðurkomið. Þess ber þó að gæta að ef tæki glatast eða því er stolið skal kennari strax tilkynna það til yfirmanns og sér tölvudeild þá um að staðsetja tækið. Alls ekki má nota Find my iPad til að eyða efni og stillingum af tækinu.


Fylgja heyrnatól iPödunum?

Nei en við mælum með að nemendur komi með heyrnartól í skólann. Heyrnartól, lyklaborð og annar jaðarbúnaður fylgir ekki með spjaldtölvunum en kennarar geta óskað eftir að skóli kaupi slíkan búnað handa þeim.