Category Archives: Unglingastig
Math Slide öppin

Math Slide öppin eru þjálfunarleikir í stærfræði.
Math Slide öppin sem eru í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum eru Add & Subtract og Hundred, Ten, One og Multiply & Divide og tens & ones.
Orðalykill

Appið miðar að því að styrkja orðaforða, vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu og máltjáningu barna. Allt eru þetta undirstöðuþættir máls og læsis. Forritið hentar öllum þeim sem eru að læra íslensku, börnum á yngsta grunnskólastigi og eldri börnum sem eru að læra íslensku sem annað tungumál.
Orðalykill er í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum.
TurnoClase

Turnoclase er app til að stjórna umræðum í kennslustofunni. Nemendur geta ýtt á takka til að fá tækifæri til að svara eða spyrja spurninga og kennarinn ýtir á „næsta“ takkann til að velja næsta nemanda.
TurnoClase nemendaappið er í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum.
Pigeonetics

Pigeonetics er app sem gerir notendum kleift að fræðast um erfðafræði með því að rækta dúfur.
Pigeonetics er í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum.
micro:bit

Í micro:bit appinu er hægt að læra að forrita í JavaScript og Python. Það er hægt að skrifa kóða sjálfur eða púsla saman kóðablokkum. Appið inniheldur mörg sýnidæmi og verkefni sem hægt er að leysa en það er líka hægt að vinna frjálst.
micro:bit er í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum.





