
LiteracyPlanet er kennslukerfi sem þjálfar enskukunnáttu og hentar það nemendum á aldrinum 6-16 ára. Kerfið miðar að því að efla enskukunnáttu með gagnvikum leikjum og æfingum. Kennarar geta fylgst með árangri nemenda og sett fyrir ákveðin verkefni í kerfinu eða nýtt sér það fyrirkomulag sem kerfið leggur til. Hér er stutt myndband um hvernig LiteracyPlanet virkar og hér hvernig kennari skipuleggur hópa og um einstaka nemendur hér.
Kópavogur eru með miðlæga áskrift af kerfinu og þeir kennarar sem hafa áhuga geta fengið nánari upplýsingar hjá deildarstjóra í upplýsingatækni í sínum skóla.





Með Nearpod getur kennari búið til gagnvirkar glærur þar sem nemendur þurfa að svara spurningum, teikna og margt fleira. Hægt er að nota gamlar glærukynningar í PowerPoint eða pdf og setja inn í Nearpod. 

Með Explain Everything geta kennarar og nemendur búið til glærukynningar og myndbönd um allt milli himins og jarðar. 