Í micro:bit appinu er hægt að læra að forrita í JavaScript og Python. Það er hægt að skrifa kóða sjálfur eða púsla saman kóðablokkum. Appið inniheldur mörg sýnidæmi og verkefni sem hægt er að leysa en það er líka hægt að vinna frjálst.
micro:bit er í dreifingu í Jamf hjá nemendum og kennurum.
Evolytes kennir fyrstu skrefin í stærðfræði á skemmtilegan hátt með leikjum með því að samtvinna námsbók, námsleik, upplýsingakerfi fyrir foreldra og einstaklingsmiðað námsefni þar sem kennari/foreldri getur fylgst með frammistöðu barns.
Appið sjálft kostar ekki en til þess að nýta það þarf að kaupa áskrift. Kópavogur kaupir áskrift handa nemendum á yngsta stigi. Nánari upplýsingar veita deildarstjórar UT í hverjum skóla.
Moka Mera Lingua appið er ætlað 3-8 ára börnum til að læra ný tungumál og til auðvelda krosstyngingu (e. translanguaging). Það er til á 13 tungumálum: Arabísku (Levantine), Kínversku (Mandarin), Ensku, Finnsku, Frönsku, Þýsku, Rússnesku, Spænsku, Norsku, Dönsku, Íslensku, Sænsku and Úkraínsku.
Appið er ókeypis og því fylgja kennsluleiðbeiningar fyrir 30-35 mínútna kennslu, með þremur viðfangsefnum og ýmsum viðbótaræfingum. Notendur læra nöfn ýmissa hluta, tölur frá 1-20, nöfn litanna, ýmis hugtök og gera nokkrar samstalsæfingar.
LiteracyPlanet er kennslukerfi sem þjálfar enskukunnáttu og hentar það nemendum á aldrinum 6-16 ára. Kerfið miðar að því að efla enskukunnáttu með gagnvikum leikjum og æfingum. Kennarar geta fylgst með árangri nemenda og sett fyrir ákveðin verkefni í kerfinu eða nýtt sér það fyrirkomulag sem kerfið leggur til. Hér er stutt myndband um hvernig LiteracyPlanet virkar og hér hvernig kennari skipuleggur hópa og um einstaka nemendur hér.
Kópavogur eru með miðlæga áskrift af kerfinu og þeir kennarar sem hafa áhuga geta fengið nánari upplýsingar hjá deildarstjóra í upplýsingatækni í sínum skóla.
Blooket er vefur þar sem kennari getur búið til spurningar sem nemendur svara t.d. í spjaldtölvum. Kennari stofnar aðgang á Blooket.com en umhverfið minnir um margt á Kahoot.
Með Stop Motion Studio appinu er hægt að gera skemmtilega hikmyndir. Til eru tvær útgáfur af appinu. Fría útgáfan er hér og keypta er hér. Vilji kennarar í Kópavogi fá keyptu útgáfuna handa sínum nemendum geta þeir haft samband við UT deildarstjóra í sínum skóla.
Google Arts & Culture er bæði vefur og app frá Google sem fjallar um listir og menningu. Hægt er að fræðast um listamenn og söfn en einnig er mikil gagnvirkni bæði á vef og í appi. Til dæmis er hægt að setja sína eigin andlitsmynd í þekkt málverk og semja fjögurra radda óperu með Blob Opera og margt fleira.