
Með Picollage er hægt að raða saman myndum á skemmtilegan hátt og skrifa texta yfir þær. Appið er hér og hér er kennslumyndband um fyrstu skrefin og hér er spurt og svarað varðandi appið.

Með Picollage er hægt að raða saman myndum á skemmtilegan hátt og skrifa texta yfir þær. Appið er hér og hér er kennslumyndband um fyrstu skrefin og hér er spurt og svarað varðandi appið.

Með Kahoot getur kennari búið til spurningar sem nemendur svara t.d. í spjaldtölvum. Kennari stofnar aðgang á kahoot.com en nemendur fara inn á kahoot.it til að spila leikinn eða nota appið.
Leiðbeiningar á íslensku hérna sem Sigríður Margrét bjó til. Hér er svo myndband með ítarlegum leiðbeiningum.
Hægt er að nota Kahoot í öllum fögum og hérna eru dæmi um stærðfræði.

Hægt er að nota gervigreind til margra nota og hér eru tvö skemmtileg dæmi og bæði frá Google. Annað heitir AutoDraw en það reynir að geta sér til um hvað notandinn er að teikna og klárar teikninguna eins og sést í þessu myndbandi.
Hitt heitir Quick Draw og þá þarf notandinn að teikna hluti samkvæmt fyrirmælum.

Bergmann Guðmundsson hefur útbúið lesskilningsprófið Orðarún í Google Forms. Þið smellið á hlekkinn og þá getið þið sótt Google Forms skjal sem hægt er að leggja fyrir nemendur ykkar og fara yfir jafnóðum. Skjalið er með innbyggðum svarlykli þannig að þið fáið niðurstöðurnar um leið og nemandi hefur svarað spurningunum.

Ertu ekki með smarttöflu? Þá er Classroomscreen eitthvað fyrir þig en með því er hægt að setja upp skeiðklukku, QR-kóða og margt fleira. Classroomscreen er notað í vafra en ekki appi, útskýring er hér.


Osmo samanstendur af mörgum þroskaleikjum fyrir börn á aldrinum 5-12 ára. Tangram var fyrsta appið en svo hafa mörg önnur öpp bæst við eins og Words og Numbers en til að nota öppin þarf fylgihluti en þá má kaupa meðal annars hjá Nova.
Hér eru fínar leiðbeiningar á íslensku um leikina sem Unnur Valgeirsdóttir í Giljaskóla tók saman og hvernig hægt er að stofna aðgang og hér er myndband frá Telmu Ýr um Osmo í kennslu.
Hér er íslenskur Facebook hópur þar sem kennarar ræða um Osmo.

Galdrabúðin er stærðfræðileikur á íslensku sem hentar börnum sem eru farin eða að byrja að leggja saman yfir 100. Höfundur efnisins er grunnskólakennari og tekur það mið af stærðfræðikennslu í 3. bekk. Efnið var unnið með hæfniviðmið aðalnámskrár í huga.
Appið kostar en það stendur nemendum og kennurum í Kópavogi til boða. Áhugasamir kennarar hafi samband við UT deildarstjóra sínum skóla.

QuiverVision er app sem breytir teiknuðum persónum í „lifandi“.
Sjá má hvernig þetta virkar hér og hérna er appið sem er ókeypis. Hægt er líka að kaupa sérstaka skólaútgáfu.

Með grænum vegg er hægt að skeyta fólki inn á ýmsar myndir eða myndbönd. Do Ink appið er mjög gott en það kostar en nemendum og kennurum í Kópavogi stendur það til boða. Áhugasamir hafi samband við UT deildarstjóra í sínum skóla.
Veescope appið er líka ágætt og það er frítt upp að vissu marki. Einnig er hægt að gera græn skjá verkefni í iMovie.
Hér eru nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga í grænskjágerð.
Með Nearpod getur kennari búið til gagnvirkar glærur þar sem nemendur þurfa að svara spurningum, teikna og margt fleira. Hægt er að nota gamlar glærukynningar í PowerPoint eða pdf og setja inn í Nearpod. Hér er hægt að stofna reikning og hér eru fjölbreytt kennslumyndbönd frá snillingunum sem halda úti Snjallkennsluvefnum.