Voice Dream – Read Aloud – textalesari

Voice Dream – Read Aloud er app sem les texta á íslensku. Appið má nálgast hér en fyrir kennara og nemendur í Kópavogi er best að spyrja deildarstjóra í upplýsingatækni um appið. Hér eru leiðbeiningar um hvernig virkja megi íslensku raddirnar. Hér eru  textaleiðbeiningar um fyrstu skrefin og hér er leiðbeiningarmyndband á íslensku.

Hér eru svo leiðbeiningar hvernig hægt er að ná í rafbækur úr bókasöfnum skóla eða beint af vef MMS.

Book Creator – rafbókargerðarapp

Allir nemendur og kennarar í Kópavogi hafa aðgang að keyptu útgáfunni af Book Creator og er hún send út í gegnum Jamf. Annars má nálgast appið hér.

Hér eru almennar upplýsingar um appið en hægt er að nota það í Chrome-vafra og hér eru við algengum spurningum. Hér eru svo „spurt og svarað“ greinar um möguleika Book Creator.

Hérna eru svo 50 kennsluhugmyndir hvernig nýta má appið og ennþá fleiri hugmyndir hér og hér.

QR kóðar í kennslu

Með QR kóðum er hægt að hafa tengla á vefsíður eða annað efni. Hér er hægt að búa til ókeypis QR kóða og hér eru leiðbeiningar hvernig hægt er að setja eigið myndband á YouTube og tengja það við QR kóða.

Hér er önnur síða sem býr til QR kóða þar sem hægt er að setja inn myndir inn í QR kóðana.

Hér eru leiðbeiningar hvernig hægt er að tengja QR kóða við hljóðskrár í Google Drive.

Hér eru 100 dæmi frá Ingva Hrannari hvernig hægt er að nota QR kóða í kennslu.

Bitsboard – App til að þjálfa orð og hugtök

bitsboardMeð Bitsboard appinu er hægt að tengja saman myndir og hugtök, æfa stafsetningu og margt fleira í gegnum leik. Það eru til þrjár útgáfur af appinu:

Ef kennarar í Kópavogi hafa áhuga á keyptu öppunum þá hafið samband við UT deildarstjóra í ykkar skóla.

Hér eru nánari upplýsingar á heimasíðu Bitsboard.

Munurinn á hefðbundnu útgáfunni og keyptu.