
Með Textingstory er hægt að búa til skilaboðaþráð milli tveggja einstaklinga sem getur verið einstaklega skemmtilegt milli persóna sem voru uppi fyrir tíma snjalltækja. Hér er appið og hér eru leiðbeiningar um fyrstu skrefin.

Með Textingstory er hægt að búa til skilaboðaþráð milli tveggja einstaklinga sem getur verið einstaklega skemmtilegt milli persóna sem voru uppi fyrir tíma snjalltækja. Hér er appið og hér eru leiðbeiningar um fyrstu skrefin.

Seesaw er námsumhverfi í formi rafrænnar námsferilsmöppu þar sem kennari getur lagt fyrir verkefni svipað og í Google Classroom og Showbie. Nánari leiðbeiningar eru hér.

Í App Store eru til ótrúlegur fjöldi vasareikna en flestir þeirra kosta eða eru fríir með mikið af auglýsingum sem geta verið truflandi fyrir nemendur. Hér eru nokkrir sem kosta ekkert og eru ekki með auglýsingar.
PCalc Lite er í dreifingu í Jamf. Áhættugreining
Desmos Graphing Calculator er grafískur vasareiknir.
Svo má ekki gleyma GeoGebra öppunum:

Numbers er töflureiknir frá Apple sem fylgir spjaldtölvunni. Hér er handbók frá Apple um notkun appsins. Hér er kennslumyndband um fyrstu skrefin í Numbers.

Pages er ritvinnsluapp (líkt og Word og Docs) frá Apple sem fylgir spjaldtölvunni. Hér er handbók frá Apple um allt er viðkemur appinu og hér leiðbeiningarmyndband um fyrstu skrefin.

Garageband er app frá Apple sem fylgir spjaldtölvunni og er notað til að búa til tónlist. Hér eru leiðbeiningar frá Björgvini Ívari um fyrstu skrefin og hér eru ítarlegri leiðbeiningar frá Fjölmennt.
Hér eru svo handbók frá Apple.

Það má ekki rugla saman Apple Classroom við Google Classroom þó nöfnin séu svipuð. Google Classroom (græna appið) er til að setja fyrir verkefni og taka á móti þeim en Apple Classroom (appelsínugula appið) er bekkjarstjórnunarkerfi. Kennarar í Kópavogi geta sótt appið í Jamf.
Hér er ágætt yfirlit yfir virkni appsins en deildarstjórar í upplýsingatækni í hverjum skóla veita nánari upplýsingar um skráningu nemenda í kerfið.

iMovie er myndbandagerðarapp frá Apple sem fylgir spjaldtölvunni. Með því er hægt að búa til myndbönd með einföldum og fljótlegum hætti enda er það mjög vinsælt meðal nemenda. Hér eru leiðbeiningar frá Björgvini Ívari um fyrstu skrefin og hér eru leiðbeiningar um Green Screen möguleikann sem er innbyggður í appið.
Hér er sýnt hvernig iMovie appið sjálft getur búið til myndband úr mörgum myndum og myndbandsbútum og hér um „Storyboard“ möguleikann.
Hér eru svo ýmsar leiðbeiningar um grunnatriði í kvikmyndagerð.

Keynote er glærugerðarapp frá Apple sem fylgir spjaldtölvunni og kostar ekkert. Það er mjög einfalt að búa til flottar glærukynningar í Keynote en einnig er hægt að nota appið til að búa til hreyfimyndir og jafnvel einföld öpp. Hér eru leiðbeiningar um fyrstu skrefin og hér eru leiðbeiningar frá Björgvini Ívari um hreyfimyndagerð og fleira en hann hefur útbúið mörg kennslumyndbönd um Keynote.

Nemendur hafa gaman af brúðugerð í spjaldtölvum og hér eru tvö öpp sem hafa notið mikilla vinsælda hér á landi síðustu ár. Þau heita nánast það sama enda frá sama framleiðanda og hafa mjög svipaða virkni.
Puppet Pals HD er meira notað með yngri nemendum eins og Fjóla Þorvaldsdóttir hefur mikla reynslu af og hefur hún útbúið nokkur myndbönd sem sýna möguleika appsins.
Tvær útgáfur eru af þessu appi. Fría útgáfan er með fáum sögupersónum en keypta útgáfan með fleiri möguleikum.

Puppet Pals 2 er hitt appið og það hefur annað útlit en Puppet Pals HD en svipaða virkni. Það kemur líka í tveimur útgáfum. Fría útgáfan er með fáum sögupersónum en keypta útgáfan með fleiri.