QR kóðar í kennslu

Með QR kóðum er hægt að hafa tengla á vefsíður eða annað efni. Hér er hægt að búa til ókeypis QR kóða og hér eru leiðbeiningar hvernig hægt er að setja eigið myndband á YouTube og tengja það við QR kóða.

Hér er önnur síða sem býr til QR kóða þar sem hægt er að setja inn myndir inn í QR kóðana.

Hér eru leiðbeiningar hvernig hægt er að tengja QR kóða við hljóðskrár í Google Drive.

Hér eru 100 dæmi frá Ingva Hrannari hvernig hægt er að nota QR kóða í kennslu.

EDpuzzle til að breyta myndböndum

edpuzzleUm er að ræða vefsíðu þar sem hægt er að sækja myndband (t.d. af Vimeo eða Youtube), klippa það til (upphaf og endi) og t.d. tala yfir myndbútinn. Þannig getur kennarinn lagt áherslu á eitthvað tiltekið eða útskýrt betur það sem fyrir augu ber. Síðan er hægt að tengja þetta við Google Classroom o.fl. Hægt er að útbúa bekk og deila myndbandinu sem ítarefni eða til innlagnar. Hér er kennslumyndband um notkun EDpuzzle.

Bitsboard – App til að þjálfa orð og hugtök

bitsboardMeð Bitsboard appinu er hægt að tengja saman myndir og hugtök, æfa stafsetningu og margt fleira í gegnum leik. Það eru til þrjár útgáfur af appinu:

Ef kennarar í Kópavogi hafa áhuga á keyptu öppunum þá hafið samband við UT deildarstjóra í ykkar skóla.

Hér eru nánari upplýsingar á heimasíðu Bitsboard.

Munurinn á hefðbundnu útgáfunni og keyptu.